Leikskólinn Síðusel
Við leggjum áherslu á að skapa gott félagslegt andrúmsloft þar sem börn og starfsmenn fá notið sín. Áhersla er lögð á vinnu með lífsleikni og að efla sjálfsmynd barnanna.
Unnið er eftir aðferðafræði altækrar gæðastjórnunar.
Í öllu starfi í leikskólanum leggjum við áherslu á að skapa og viðhalda jákvæðri ímynd.
Börn og starfsmenn komi glöð, séu ánægð og fari sátt.

 

SMT

Fréttir


Kennsluáætlun

SMT-Teymi
Fundargerðir

Innleiðsla SMT
Þann 11. janúar 2010 hófst formleg innleiðsla SMT í leikskólann. Kennarar undirbjuggu sig í eitt  ár til að innleiðslan gengi vel fyrir sig.
Við tökum allt árið 2010 í að innleiða SMTog æfum þær reglur með börnunum sem gilda fyrir hvern stað/stund í um það bil 3 vikur. 
Innleiðing hófst 11. janúar á yfirreglum en það eru þær reglur sem eru í gildi á flestum svæðum leikskólans:
° Nota innihljóð
                      ° Hafa hendur og fætur hjá sér

                    ° Leysa ágreining með orðum
    ° Ganga rólega inni
          ° Fara eftir fyrirmælum
Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur þetta og fylgjast vel  með þessari vinnu.
Sjá má kennsluáætlun á hlekk hér til hliðar.

 

Leikskólinn Síðusel hóf  að hausti 2008 undirbúning við innleiðslu á SMT - skólafærni eða jákvæðum stuðningi við hegðun nemenda.
SMT - skólafærni er útfærsla á bandarísku aðferðinni Positive Behavior Support /PBS.  SMT er hliðstæð aðferð og PMT - foreldrafærni (Parent management training) þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda sem því að kenna og þjálfa félagsfærni, umbuna fyrir æskilega hegðun og samræma vinnubrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna óæskilega hegðun. Innleiðsla SMT - skólafærni tekur þrjú til fimm ár og mun leikskólinn nota veturinn undirbúnings
 

Stofnað verður SMT teymi við leikskólann sem undirbýr og annast innleiðslu aðferðarinnar í skólann.
Verkefnisstjóri er Sesselja Sigurðardóttir,  leikskólaráðgjafi og leikskólakennari og hefur hún aðsetur á Skóladeild. 
Nú þegar eru 4 starfsmenn búnir að fara í PMT - grunnmenntun og stefnt er að 1 fari á námskeið í ársbyrjun 2010.

Bent er á heimasíðu PMT - foreldrafærni í Hafnarfirði http://www.pmt-foreldrafaerni.is þar sem ýmsar upplýsingar má finna um PMT og SMT.

Undirbúningsár 2008-2009

September 2010
Um miðjan september byrjum við á að rifja upp reglur frá síðasta vetri og höldum svo ótrauð áfram þar sem frá var horfið í vor. Kennsluáætlunin fyrir veturinn er komin á heimasíðuna og gott væri ef foreldrar kynntu sér hana, svo við séum samstíga í uppeldinu.

26. janúar.
Þá er innleiðslu fyrsta regluhópsins lokið. Byrjað var á því að innleiða yfirreglur en það eru reglur sem gilda á öllum svæðum leikskólans. Innleiðslan gekk mjög vel og var mjög spennandi að fylgjast með því hvort við næðum Sólarveislu í lokinn. Það tókst með ágætum og vorum við með Sólarveislu föstudaginn 22. jan.þar sem börn á öllum deildum leikskólans fengu skúffuköku. Í þetta skipti völdu kennararnir hvað hafa ætti í veislunni en næst munu börnin kjósa um það.
 

Kennsluáætlunin verður sett inn í byrjun janúar. Mikilvægt er að foreldrar fylgist vel með og viti þannig hvaða reglur við erum að innleiða hverju sinni. Foreldrar hafa möguleika á að nýta sér þessa vinnu til stuðnings uppeldinu heima fyrir, þá skapast samfella milli  heimilis og skóla.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ábyrgðarmenn:
Hanna Berglind Jónsdóttir  
Ólöf Huld Ómarsdóttir

Kjalarsíða 3  603 Akureyri sími 462-3034 / 864-8034 sidusel(hjá)akureyri.is Leikskólastjóri Snjólaug Pálsdóttir