-
Hvernig temjum við okkur
glaðværð?
Við gerum allt sem við tökum okkur fyrir hendur með
glöðu hjarta. Leyfum ekki
neikvæðum hugsunum að komast að. Njótum góðu hlutanna
sem gerast. Þegar
erfiðleikar steðja að leyfum þá áhyggjunum og sorginni
að koma en leyfum þeim líka að fara.
Hugsum jákvætt um allt sem gerist og reynum að læra af
því og horfa á björtu hliðarnar. Verum glöð og leyfum
kímnigáfunni að njóta sín. Hlátur er hollur
fyrir sálina og eflir glaðværðina. :)
-
Sæl og blessuð ;)
Nú er aldeilis margt um að vera hjá okkur næstu daga.
Á morgun fimmtudag 27. október, er alþjóðlegi
bangsadagurinn. Þá mega börnin taka með sér bangsa í
leikskólann og leyfa honum að taka þátt í starfinu með
okkur ;) Muna bara hófsemina í fjölda bangsa.
Á föstudaginn er Sólargleði. Í samveru í vikunni sem
leið komu börnin með uppástungur að Sólargleði og völdu
kennarar Álfadeildar svo þrennt af þeim lista:
Rugludagur, Búningadagur og Tónlistardagur.
Börnin fóru svo eitt í einu fram til Sigþóru þar sem þau
kusu það sem þau helst vildu gera í Sólargleði. Atkvæðin
fóru sem hér segir:
Tónlistardagur 2 atkvæði
Rugludagur 6 atkvæði
Búningadagur 8 atkvæði
Á föstudaginn 28. október verður því búningadagur hjá
okkur í Sólargleði ;)
Þriðjudaginn næstkomandi verður svo Síðusel 30 ára.
Munu kennarar bjóða börnunum upp á heimagerða
leiksýningu um morgunin en svo eftir hádegi eða frá kl.
14-16 munu börnin bjóða fjölskyldum sínum til
kaffisamsætis í leikskólanum.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja kennarar Álfadeildar
-
10.júní
Þessa dagana erum við að undirbúa fagnað fyrir 16. júní
en þá ætlum við að hitta vinaleikskólana okkar: Sunnuból
og Krógaból við Síðuskóla og syngja þar saman söngva á
hól í tilefni af þjóðhátíðardegi okkar 17. júní.
Eins og flestir hafa orðið varir við urðum við sökum
ónærgætni náttúrunar að fresta fyrirhugaðri ferð okkar í
Naustaborgir en við ætlum okkur að fara þangað um leið
og skipulag leyfir og veðrið verður okkur hagstætt.
Kveðja kennarar Álfadeildar
-
Sumar
Þá hefur sumarskipulag tekið við á Álfadeild
(sjá í fataherbergi) en það gildir til 15. september.
Nú eykst sá tími sem við dveljum úti í takt við hækkandi
sól og vonandi hlýnandi veður. Börnin fara einnig meira í val
þegar við erum inni. Í sumar getum við átt það til að
stökkva af stað í ferðir án mikils fyrirvara og því
mikilvægt að fylgjast vel með töflunni í fataherberginu
og eins tölvupósti (getum líka skellt okkur af stað að
morgni dags án nokkurs fyrirvara og skiljum þá eftir
símanúmer á töflu).
Nú erum
við að kveðja elstu börnin okkar sem eru að hverfa á
braut og takast á við næsta skólastig og kveðjum við þau
með söknuði og óskum þeim og fjölskyldum þeirra
velfarnaðar í framtíðinni. Einnig tökum við á móti
börnum af Trölladeild eftir sumarfrí og hlökkum til að
vinna með þeim og fjölskyldum þeirra.
Kveðja kennarar
Álfadeildar
-
Skemmtiferð í Naustaborgir
Kæru foreldrar
Við kennarar Álfadeildar erum að velta fyrir okkur hvort
börnin ykkar hefðu ánægju af skógarferð,
þ.e. ferð í Naustaborgir eins og í fyrra.
Hugmyndin er sú að við biðjum ykkur um að koma börnunum
ykkar að Naustaborgum að morgni þriðjudagsins 7.júní
Þar áætlum við að dvelja fram eftir degi, kynna okkur
náttúruna, borða , leika okkur, og koma síðan aftur í
leikskólann með strætó eftir hádegi eða milli kl. 13 og
14(heimferð ákveðin með tilliti til veðurskilyrða).
Viðbrögð vel þegin.
Kveðja
Ólöf, Sigþóra og Hobba
-
Vorönn
Með hækkandi sól, hugurinn rís ;)
Nú á vorönn erum við að vinna með dygðina Virðingu.
Dygðavísar eru komnir í hólf og gott að renna yfir þá
svona til að glöggva sig aðeins ;)
Mikilvægt er að við sýnum öllu fólki Virðingu. Einkalíf
okkar væri fótum troðið væri Virðingu ekki til að
dreifa. Án Virðingar töluðum við ruddalega hvert við
annað og kæmum fram við aðra eins og þeir skiptu okkur
engu máli. Án sjálfsvirðingar mundum við leyfa öðrum að
nota okkur eða særa.
Virðing felur í sér að við tjáum okkar skoðanir, virðum
skoðanir annarra og gerum okkur grein fyrir að oft má
líta á mál frá fleiri en einu sjónarhorni.
Mikilvægt er að hafa Virðingu ávallt að leiðarljósi í
samskiptum við annað fólk.
Kveðja kennarar Álfadeild.
-
Haustönn
Vinsemd er dygðin okkar nú í
haust. Við þurfum öll (kennarar, foreldrar, börn) að
minna okkur reglulega á og tileinka okkur þau góðu gildi
sem skapa Vinsemd á milli fólks. Það að eiga góðan vin,
fá að tilheyra hópi á eigin forsendum og leyfa öðrum að
njóta þess sama er mikilvægur þáttur í jákvæðum
samskiptum. Dygðin verður rauður þráður í
leikskólastarfinu og verður hvert tækifæri nýtt sem
gefst til að ræða um Vinsemd, notum orð sem tilheyra
Vinsemd, lesum bækur og syngjum söngva og ekki má gleyma
því að æfa sig í daglegum samskiptum.
Við hlökkum til samstarfsins í haust og að vinna með
þessa mjög svo mikilvægu dygð.
Kveðja kennarar Álfadeild.