Leikskólinn Síðusel
Við leggjum áherslu á að skapa gott félagslegt andrúmsloft þar sem börn og starfsmenn fá notið sín. Áhersla er lögð á vinnu með lífsleikni og að efla sjálfsmynd barnanna.
Unnið er eftir aðferðafræði altækrar gæðastjórnunar.
Í öllu starfi í leikskólanum leggjum við áherslu á að skapa og viðhalda jákvæðri ímynd.
Börn og starfsmenn komi glöð, séu ánægð og fari sátt.

 

Dagbók leikskólans

Tilkynningar

Álfadeild
Dvergadeild
Trölladeild

Ýmsar upplýsingar
SMT
Námskrá
Lífsleikni
Þróunarstarf
Starfsfólk
Fréttabréf
Matseðill
Sérkennsla
Gestabók

 

Þá er maí upprunninn, blóm og runnar að vakna til lífsins og við farin að huga að starfinu í vor og sumar. Vetrarstarfinu með sínu formlega starfi líkur 15. maí. Þá tekur við opnara skipulag, þar sem leikurinn fær að njóta sín bæði inni og úti, mörg barnanna eiga nú eftir að fagna því. Engu að síður verður ýmislegt brallað og gert sem væntanlega ræðst m.a. af veðri og vindum.

 

Við erum komin af stað með umræður um dygðina GLAÐVÆRÐ. Við spyrjum til dæmis: Hvað gleður okkur? Hvað gleður foreldra okkar og vini? Börnin eiga oft gott með að skilja dygðina þegar teflt er fram andstæðu hennar. Eins er gott að nota svipbrigði. Fyrir yngstu börnin er gott ráð að setja upp fýlu– eða reiðisvip og spyrja: Er ég núna glöð/glaður? Spegillinn kemur þarna líka í góðar þarfir, skoðum okkur í spegli, ýmis svipbrigði. Það er líka góð aðferð til að kenna börnum að lesa úr tilfinningum annarra

9. maí - Trölladeild fer í Rósenborg
16. maí - Uppskeruhátið leik- og grunnskóla
15. maí - Snillingar fara á Slökkviliðsstöðina
15. maí - Vetrarstarf líkur
22. maí - Snillingar fara í óvissuferð
31. maí - Töfraveröld tóna og hljóða, sýning

Skólaárið 2011 – 2012
Lokað verður hjá okkur eftirtalda daga

Lokað kl. 12:15 vegna starfsmannafunda:
26. ágúst 2011
11. nóvember 2011
2. janúar 2012
12. mars 2012

Skipulagsdagar eru:
30. september 2011
6. febrúar 2012

Námskeiðsdagur er:
20. apríl 2012

Skóladagatal 2011-2012
 

 

Sumarlokun Síðusels
2012 – 2014
Leikskólinn lokar 20 virka daga

Sumarlokun 2012
25. júní - 20. júlí

 Sumarlokun 2013

 8. júlí – 2. ágúst

Sumarlokun 2014

23. júní - 18. júlí

 

Ábyrgðarmenn:
Hanna Berglind Jónsdóttir  
Ólöf Huld Ómarsdóttir

Kjalarsíða 3  603 Akureyri sími 462-3034 / 864-8034 sidusel(hjá)akureyri.is Leikskólastjóri Snjólaug Pálsdóttir